Prófíll

  • Nafn: Eydís Sigurðardóttir
  • Staður: Reykjanesbær
  • Atvinna: Kaffitár
  • Hjúskaparstaða: Á föstu
  • Um mig: Ég er 23 ára suðurnesjakvenna. Hress sem fress.;)
  • Annað: Blindur er sjónlaus maður

Jólin fara að koma!

Korn vikunnar

I am a virgin, I'm just not very good at it!

Hitt og þetta

Innskráningar kubbur

Hnerr.....

19. janúar 2009 klukkan 17:49
Mér hefur alltaf fundist gott að hnerra. Ég hnerra þó aldrei oftar en 2x í röð og verð nú að viðurkenna það að ég hálföfunda fólk sem getur hnerrað 3x til 4x í röð.... Nánar

Lákinn minn

23. desember 2008 klukkan 13:41
Svona ganga hlutirnir fyrir sig heima hjá mér :)... Nánar

Jæjjaaaaaa!:)

11. desember 2008 klukkan 10:09
Þá er kominn tími til að fara í jólafrí!:)... Nánar

Steina is back in the building!!!

28. október 2008 klukkan 01:31
Jeijj ég ætla að blogga loksins loksins! Lesið um spennandi ævintýri Steinu stórkostlegu og baráttu hennar við heimsins versta óvin, Letina! Besti vinur hennar sófinn berst við aukakílóin HENNAR á meðan þvotturinn þvær sig því miður ekki sjálfur... Og allt þetta á meðan fólk allstaðar í heiminum einbeitir sér að því að kreppa... og sleppa!... Nánar

Hahahahaaaa

23. október 2008 klukkan 11:09
Sagði stelpan og hló!Surprised

HALTU KJAFTI!!

30. september 2008 klukkan 19:10
Smíða skútu, skerpi skauta, bý til dúndur osta og grauta. Haltu kjafti.
Er þetta ekki svona.:)

Lalllallallallalala....

Jæja kæru hálsar. Hvað segiði gott???
Ein pæling.
Þegar einhver dettur eða eitthvað gerist og manneskjan hefur augljóslega meitt sig alveg helling, afhverju segir fólk alltaf "er ekki allt í lagi????"??? Auðvitað er ekki allt í lagi. Ætti maður ekki að segja eitthvað annað eins og uu.. æj veit ekki. Ertu nokkuð mikið slasaður eða eitthvað.

Annars er allt gott að frétta, allt gengur skítsæmilega í skólanum og kynlífið er alveg skítsæmilegt líka. Ahhhahaha... djók, tala nú ekki um það hér.HissaUllandi híhí...

bless og ekkert stress og verið hress sem fress.
eruði ekki komin með lagið þarna á heilann??? múhahahha

JA HÉRNA, ég hef ekkert þol!!:(

16. september 2008 klukkan 19:33
Guð minn, ég hef alltaf ætlað að blogga en svo bara hefur ekkert orðið úr því. Held að ég sé svona löt. En ég skal svona segja frá hvað ég hef verið að gera uppá síðkastið sætu krúttin mín.:)

Ég fór helgina eftir að ég kom frá dk, man ekki enhverntímann í enda ágúst með henni Steinu minni í sveitina hennar það sem hún var jú búin að lofa að taka mig á hestbak.:) Þetta var alveg yndisleg helgi, eða einkum laugardagurinn. Mmmmm.... Það var bara slappað af þarna, gerði ekki rassgat meðan Steina var að pakka niður dótinu sínu til að taka með í nýja íbúðina hennar. Svo um 4 leitið skelltum við okkur á bak í alveg yndislegu veðri og það var alveg þrælgaman, hef ekki svona reiðtúr í eitthvað 6 ár, og hey, mín passaði ennþá í reiðbuxurnar sem ég fékk í fermingargjöf!:D Svo um kvöldið fengum við að elda dýrindis lambalæri og drukkum rauðvín. Síðan skellt sér í pottinn, svo haldið áfram að drekka rauðvín eftir það og horf á stjörnurnar og talað um lífið og veginn. Sáum þarna líka helling af stjörnufalli, það er ekki á hverju kvöldi sem það gerist.:) Allavega takk fyrir mig!:)

Síðan var ljósanótt, ekkert spes nema við duttum í það og þynka dauðans daginn eftir. Eins og vanalega:(
Núna síðustu helgi var jeppaferð í vinnuni hans Eyjólfs, ég var svosem búin að segja að ég kæmist ekki því María vinkona mín frá danmerku ætlaði að vera á íslandi yfir þá helgi, en þá fékk ég þetta hundleiðinlega íslenskuverkefni þar sem ég átti að þýða og túlka passíusálm eftir Halla P. svo ég gat ekkert hitt hana Maríu mína, svo þetta var frekar glötuð helgi, og ofan á það var ég að deyja úr kvefi.Hrmpff.

En tilhvers er maður að læra þetta, afhverju er skilda að læra þetta helvíti?? Eins og fyrir mig sem er í náttúrufræðibraut á væntanlega aldrei eftir að nota þetta í framtíðinni. OG ÍÞÓTTIR, afhverju er skilda að taka íþróttir í fjölbraut???? Mér finnst það asnalegt. Ég er sko ekki að fara að hlaupa mér litlu krökkunum og taka bíbbtest eða fara í boltaleik!!! 2 tímar í viku þar sem maður þarfa að taka auka tösku með fyrir íþróttafötin og drífa sig í sturtu eftir tímann svo maður komi ekki seint í næsta tíma!! Ojjj hvað þetta var leiðinlegt þegar ég var í þessu. En til að sleppa þessu tók ég annan áfanga sem byrjaði í dag og endar 3.okt. Þar eru íþróttatímarnir fyrir útan skólatímann og er 1 sinni í viku nema þessa viku þá er það reydnar 2sinnum og svo 3 sundtímar það sem við ráðum hvenær við tökum þá. En þarna erum við bara úti að skokka, hjóla eða spinning. Þetta er mikið skárra heldur en hitt. Væri samt alveg til í að sleppa þessu.:) Því ég er svo löt....

En í dag er búið að vera hellidemba og rok, svo Kiddý íþróttakennarinn minn var góð við okkur og leyfði okkur að labba og skokka 4 hringi í kringum íþróttavöllinn á Sunnubraut. Þetta er ekkert svakalega stór hringur, en ég ætlaði að hafa það þannig að ég myndi labba 1 hring og skokka 1 og svo labba og svoa skokka. Guðmundur góði sko... Ég skokkaði svo 1 hring og ég gat varla andað þegar hringurinn var að klára, en ég lét mig hafa það að klára hann. Nú ég held að ég viti hvernig stórreykingar fólk líði þegar það fer út að skokka og er með núll þol eins og ég. Nei ég er ekki með 0 þol ég með -10 þol. Ég labbaði næsta hring og enn að reyna að ná andandum, píni mig til að skokka aðeins meira en gefst upp eftir tæpan hálfan hring, ég hreinlega náði ekki að anda, mér var svo illt og gat ekki hætt að hósta!!! ÞVÍLÍKUR AULI!!! Hahahahha.... Núna er ég sko hætt að drekka og reykja á fylleríum, og kanski maður reyni að breyta mataræðinu í leiðinni!:) Ég var nú lítið þreytt og svitnaði ekkert en lungað var bara ekki að meika þetta álag. Þvílíkt og annað eins álag. Ég hef aldrei lent í öðru eins. Mér kvíður bara fyrir spinningtímanum sem ég er að fara í á föstudaginn. Fokkídífokk. Ég á örugglega eftir að gera mig að fífli þarna.

En ég ætla barasta að reyna að koma mér í form aftur, hef alltaf verið duglega að stunda líkamsrækt nema núna þegar ég flutti til íslands aftur, hef ekkert farið síðan ég kom heim á klakann.

En jæja nóg í bili, var að tala við Þórunni og hún er að fá sér hamborgara og mér langar líka í.:)


bæbæbæbæbæbæ:)

ÉG Á ÍBÚÐ!!!

02. september 2008 klukkan 13:31
Vissuð þið það? hehe, við Röggi splæstum í íbúð saman og núna erum við íbúðareigendur í innri Njarðvík! Búum beint fyrir neðan Eydísi og Eyjólf þannig ég hef það á tilfinningunni að við Eydís eigum eftir að vera mikið hjá hvor annari þegar okkur leiðist.
En já, nú er bara að fara að mála og gera íbúðina sæta og flytja inn og þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því að flytja eða neitt fyrr en við erum orðin leið á þessum stað!

Smá innskot: Ég lét Markó fara út áðan til að njóta góða veðursins og fór svo á klósettið örsnöggt og þegar ég kom aftur þá sá ég að bandið var svona meðfram pallinum og hreyfðist ekkert og ég heyrði ekkert í honum né sá hann svo ég fór að kalla aðeins á hann, gá hvort það væri allt í lagi, og þá heyrði ég í hálsólinni hans svo ég fór bara aftur inn og var eithvað að dunda mér í tölvunni. Svo svona 20 mínútum síðar fór ég aftur fram og þá var bandið ennþá þarna svo ég kíkti út fyrir pallinn og þá sat hann voða svalur og alveg sallarólegur við snúrustaurinn og horfði bara uppí himininn.. Svo sá ég nefnilega að hann var búin að flækja sig þvílíkt í kringum snúrustaurinn, en hann hefur svo oft flækt sig og við erum alltaf að dæsa yfir kjánanum honum Markó að hann hefur örugglega skammast sín svo mikið núna að hann þorði ekki að láta vita! hehehe bjána hundur... Núna er hann á lærunum á mér á meðan ég skrifa þetta, ekki alveg sáttur við að fá enga athygli =)

En já, mér fannst þetta svo fyndið af honum, einn sem hefur örugglega ekki viljað viðurkenna að hann væri fastur =)

Já núna er ég svo að fara að æfa á píanóið hjá Skúla svona áður en ég fer í tíma hjá Örvari á eftir =)

Veriði margblessuð og sæl =)

Þrumuveður dauðanns!!!

21. ágúst 2008 klukkan 15:21
Já góðann daginn mínu elskulegu lesendur!:) Eða á ég að segja lesandi, semsagt Steina.:) Hahahahha.... Djöfull erum við vinsælar. En ef það er einvher annar sem les þá má hann endilega kvitta, segja bara kvittkvitt eða kúk í bala.:)

Allavega æm in dk. og það rignir og rignir, er búin að fá einn góðan dag síðan ég kom hingað fyrir rúmlegri viku síðan. En samt hlýtt og búið að vera voðalega huggulegt og allt það. Djamm á föstudaginn, þýnka á laugardaginn og svo eitthvað gaman á sunnudaginn og svo heim á mánudaginn, hitta Eyjó, víííí:D. og svo skóli... ohhh... hvað ég er ekki að nenna í skólann samt.:(

Til hamingju með húsið Steina og Röggi....:)

Bless í bili. bæbæbæbæbæb......

Ég á afmæli í dag!:)

01. ágúst 2008 klukkan 21:57
Ógéðslega gott veður í dag. omg. vá hvað það var heitt. Við Eyjólfur fórum á Reykjansevitann og skoðuðum þar í kring, það er svo fallegt þarna, synd hvað við förum sjaldan þangað þetta er svo stutt í burtu.
En hann Eyjólfur minn skellti sér á skeljarnar þarna í sólarblíðunni, svaka rómó, vorum alein svona næstum, voru nokkrir túrhestar þarna í kring, en soldið frá okkur.:) En svo var bara svo ógéðslega heitt að rétt eftir að við settum á okkur þessa þvílíkt flottu hringa þá hentumst við inní bíl og settum lofkælinguna á, mér var farið að svima í hitanum.

Þetta er búið að vera yndislegur dagur, mamma og pabbi bauð okkur í mat, í ógó gott lambalæri, og svo kíktum við aðeins til tengdó. Núna erum við komin heim þar sem Katrín vinnufélaginn minn ætlar að kíkja til mín eftir vinnuna og kíkja á Depil litla, hann ef nefnilega farinn að hafa varanleg áhrif á lungun hjá honum Eyjólfi mínum:( svo við verðum að losna við kisa sem fyrst. og hún segist hafa áhuga á honum. Hann er líka svo mikið yndi.:)

En jæja höfum þetta gott í bili.

Þarna bað hann mín!:) Þarna uppi...

Flottir hringarinr!:)

Svo hamingjusöm!;)

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Steinunn Björg Ólafsdóttir
  • Staður: Reykjanesbær
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Ekkert í augnablikinu
  • Hjúskaparstaða: Á föstu
  • Um mig: Frábær, frekja, ofdekruð, fyndin, sæt og kvíðin, dramatísk og mjög stressuð, hress og spes og skrítin.
  • Annað: Betra er að hlaupa í spik en í kekki!

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvernig finnst þér síðan okkar?

Leikur dagsins

Nýjast á HumorPix

Funny Images, People who think outside the patterns are special! Funny Images, May the force be with you. Funny Images, Cowboy Henk Funny Images, Dumb girl poses Funny Images, Yeah, I'm old. Funny Images, Sad Book